Innlent

Lögreglan nappaði 152 við ofsaakstur

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Fjórir bílar voru notaðir við umferðareftirlit
Fjórir bílar voru notaðir við umferðareftirlit Lögreglan
Lögreglan á Norðurlandi vestra kærði 152 ökumenn fyrir of hraðan akstur í síðastliðinni viku.

Sá hraðasti var mældur á 162 kílómetra hraða á klukkustund á milli Sauðárkróks og Varmahlíðar. Eins og fram kemur í færslu lögreglunnar þá er hámarkshraðinn þar 90 kílómetrar á klukkustund.

Þá var „sérstakur umferðareftirlitsdagur“ í umdæminu í gær og voru þá 4 lögreglubifriðar við hraðaeftirlit samtímis. Í lok dags höfðu 45 verið kærðir fyrir of hraðan akstur. Sá hraðasti mældist á 138 kílómetra hraða á klukkustund á þjóðvegi 1, í Blönduhlíð, þar sem hámarkshraði er 90.

Lögreglan boðar áframhaldandi umferðareftirlit á Norðurlandi vestra og eru ökumenn beðnir um að virða hármarkshraða á vegum og sýna tillitsemi í umferðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×