Innlent

Lögreglan lýsir eftir Þorbirni Degi

Atli Ísleifsson skrifar
Talið er  líklegt að Þorbjörn haldi til á Reykjavíkursvæðinu.
Talið er líklegt að Þorbjörn haldi til á Reykjavíkursvæðinu. Vísir/Vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Þorbirni Degi Jósepssyni, 17 ára. Þorbjörn er 180 cm á hæð og um 80 kíló. Í tilkynningu frá lögreglunni segir að Þorbjörn Dagur sé með stutt brúnt hár og brún augu.

Þorbjörn var í svartri úlpu og í strigaskóm ekki vitað um lit á þeim. Þorbjörn fór frá heimili sínu í dag klukkan 13 og skilaði sér ekki á áfangastað  seinnipartinn í dag.

Talið er  líklegt að Þorbjörn haldi til á Reykjavíkursvæðinu.

Þeir sem vita um ferðir Þorbjörns eru vinsamlegast beðnir um að láta lögregluna á Suðurnesjum vita í síma 444-2299.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×