Innlent

Lögreglan lýsir eftir 16 ára stúlku

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sólrún Petra Halldórsdóttir er 16 ára.
Sólrún Petra Halldórsdóttir er 16 ára.
Lögreglan á Suðurlandi lýsir eftir Sólrúnu Petru Halldórsdóttur en hún er 16 ára gömul, grannvaxin og um 166 cm á hæð.

Hún er með brún augu og rauðbrúnt, sítt hár. Hún er klædd í bláar og rifnar gallabuxur, svartan netabol og hvíta peysu yfir. Hún er í svartri úlpu með loðkraga og í svörtum strigaskóm. 

Sólrún fór frá heimili sínu í Rangárvallasýslu í fyrrinótt og hefur ekki náðst til hennar síðan. Talið er að hún dvelji nú á Höfuðborgarsvæðinu.

Þeir sem telja sig hafa upplýsingar um Sólrúnu eru beðnir að hafa samband í síma 444 2000 eða 112




Fleiri fréttir

Sjá meira


×