Innlent

Lögreglan leitar manns

Samúel Karl Ólason skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af þessum manni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af þessum manni. Mynd/Lögreglan
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af manninum á meðfylgjandi mynd vegna máls sem hún hefur til rannsóknar.

Ef einhverjir þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru hinir sömu vinsamlegast beðnir um að hringja í lögregluna í síma 444-1000.

Upplýsingum má einnig koma á framfæri í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Ekki liggja fyrir frekari upplýsingar um hvernig maðurinn tengist málinu sem vísað er til. Í samtali við Vísi sagðist Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, ekkert geta gefið upp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×