Viðskipti erlent

Lögreglan í Los Angeles: „Ekki setja iPhone 6 í örbylgjuofn“

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Þetta gerist ef iPhone er settur í örbylgjuofn.
Þetta gerist ef iPhone er settur í örbylgjuofn.
Eigendur iPhone 6 eru beðnir um setja símana sína ekki í örbylgjuofn af lögreglunni í Los Angeles. Yfirlýsingin kemur til vegna þess að nú gengur auglýsing um netheima sem segir að hægt sé að hlaða iPhone 6 með því að stinga honum inn í örbylgjuofn og kveikja á. Þetta er gabb, sem einhverjir hafa því miður fallið fyrir. Los Angeles Times greinir frá.

Gabbið er mjög metnaðarfullt. Einhver hefur gert glæsilega „auglýsingu“ þar sem fólki er tilkynnt að hægt sé að stinga símanum í örbylgjuofn til að bæta í rafhlöðuna. Auglýsingin er látin líta út fyrir að vera frá Apple fyrirtækinu. Þessi „nýjung“ er kynnt sem Wave og er eigendum iPhone sagt að þeir geti sett símann í örbylgjuofninn í eina og hálfa mínútu og segir að örbylgjurnar tengist útvarpsmóttakaranum í símanum og komist þannig inn í rafhlöðu símans.

Talsmaður slökkviliðsins í Los Angeles segir að það geti reynst varasamt að setja símann sinn í örbylgjuofn. „Það ætti ekki að setja neinn málmhlut inn í örbylgjuofna,“ segir Brian Humphrey í samtali við LA Times og segir að eldur geti kviknað ef slíkt sé gert. Hann bætir því við að ef farsímar eru settir í örbylgjuofna gætu þeir valdið sprengingu. Hann segir þó að engar tilkynningar hafi borist um eld sem hafi kviknað út frá iPhone í örbylgjuofni.

Hér að neðan má sjá „auglýsinguna“ sem gengur um netheima.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×