Innlent

Lögreglan gerir ekki neitt í Caruso-málinu

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Lögmaður José Garcia veitingamanns á Caruso segir rekstrartap veitingahússins þegar orðið gríðarlegt og frekara tjón sé yfirvofandi vegna yfirtöku eigenda húsnæðisins.
Lögmaður José Garcia veitingamanns á Caruso segir rekstrartap veitingahússins þegar orðið gríðarlegt og frekara tjón sé yfirvofandi vegna yfirtöku eigenda húsnæðisins. Vísir/Stefán
Lögreglan hefur ekki enn hleypt José Garcia, eiganda veitingastaðarins Caruso, og starfsfólki hans inn á staðinn til að sækja eigur sínar.

Eins og Fréttablaðið hefur greint frá undanfarna daga réðst eigandi húsnæðis Caruso að Þingholtsstræti í leyfisleysi inn á veitingastaðinn á þriðjudagsmorgun, tók staðinn yfir, skipti um skrár og byggði varnarvegg til að koma í veg fyrir að eigandi staðarins og starfsmenn kæmust þangað inn.

Þessar aðfarir voru kærðar til lögreglu strax sama morgun, en þrátt fyrir það hefur ekkert verið gert í málinu.

Ómar Örn Bjarnþórsson
Lögmaður José fundaði með lögreglu í gær og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er það til skoðunar hjá lögreglunni án þess að nokkur ákvörðun hafi verið tekin.

„Margir starfsmenn eiga þarna inni persónulegar eigur, föt, tölvur og annað. Þá eru matvæli og vínbirgðir upp á tugi milljóna í eigu Caruso læst inni. Rekstrartapið er þegar orðið gríðarlegt, matvælin eru að renna út og frekara tjón er yfirvofandi. Ég átta mig ekki á því hvers vegna lögreglan er ekki farin þarna inn og á mjög erfitt með að útskýra fyrir José og öðru starfsfólki Caruso hvers vegna það getur ekki farið og náð í eigur sínar með aðstoð lögreglu,“ segir Ómar Örn Bjarnþórsson, lögmaður José.

Arnar Þór Stefánsson
Arnar Þór Stefánsson, sérfræðingur í kröfu- og fasteignarétti, segir að með athæfi sem þessu skapist hættulegt fordæmi í íslenskum rétti.

„Ef lögreglan ætlar ekkert að gera þá skapar það það fordæmi að allir leigusalar þessa lands geta, ef þeir eru ósáttir við leigutaka, farið inn í húsnæðið án dóms og laga og skipt um skrár. Lögin gera ekki ráð fyrir þessu. Þau segja að ef menn ætla að fá leigjanda út þá þurfi þeir að fara í sérstakt útburðarmál. Með þessu er verið að viðurkenna gertæki, það að menn taki lögin í eigin hendur, lögreglan horfir upp á það og gerir ekkert í því og viðurkennir þannig í reynd refsiverða nálgun leigusalans,“ segir Arnar Þór.


Tengdar fréttir

Veitingamaðurinn á Caruso læstur úti af húseigandanum

José Garcia, veitingamaður á Caruso, læstur úti af staðnum af húseigandanum vegna deilna um leigusamning. Mikið af eignum inni á staðnum og veggur reistur til að varna starfsfólki inngöngu. Kærði atvikið til lögreglu.

Rekstur Caruso lamaður eftir yfirtöku

José Garcia veitingamaður á Caruso segir framkomu húseigenda ótrúlega og hann efist um að þessi framkoma þekkist í öðrum Evrópulöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×