Innlent

Lögreglan efld í baráttu við hrelliklám

Kristjana Björg Guðbrandsdóttir skrifar
Sigríður Björk boðar stefnubreytingu, auknir fjármunir verði settir í rannsókn brota á borð við hrelliklám.
Sigríður Björk boðar stefnubreytingu, auknir fjármunir verði settir í rannsókn brota á borð við hrelliklám. vísir/ernir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir baráttuna gegna ofbeldi og kúgun á netinu verða eflda.

Lögreglan ætlar til að mynda að taka á hefndarklámi, eða hrelliklámi svokölluðu. Það er opin­ber birt­ing á kyn­ferð­is­legu myndefni án sam­þykkis þess sem er í myndefn­inu.

Emma Holten, dönsk baráttukona gegn slíku klámi, segir mikilvægt að íslensk löggæsla sé efld og þau lagaúrræði sem til eru séu nýtt.

Sigríður Björk tekur undir sjónarmið Emmu og segir meira fé verða veitt í vinnu við þessi brot.

Emma Holten segir lykilatriði að efla löggæslu og nota þau úrræði sem séu til staðar. Fréttablaðið/Vilhelm
„Að sjálfsögðu lítum við þennan málaflokk alvarlegum augum. Fyrst má telja það sem er mikilvægast sem er aukin fræðsla fyrir lögreglumenn og starfsmenn réttarvörslukerfisins til þess að unnt sé að upplýsa þessi brot og koma lögum yfir þá sem þessi brot fremja. Stefnubreytingin felst þá í að auka fjármuni í vinnu við þessi brot.“

Sigríður Björk segir lögregluna þurfa að laga sig að breytingum á afbrotum.

„Það er alþekkt að brot taka breytingum og lögregla þarf sífellt að laga sig að breyttum aðstæðum og nýjum brotum. Við erum að reyna að búa svo um hnútana að við eigum sérhæfða starfsmenn og tækjabúnað til að rannsaka brot þar sem tölvur eru notaðar auk sérhæfðs fólks sem sinnir rannsóknum kynferðisbrota,“ segir Sigríður Björk. Þar á hún við stoðdeild löggæslusviðs, tölvurannsóknar- og rafeindadeild og kynferðisbrotadeild.

Steinarr Kr. Ómarsson lögreglufulltrúi starfar í tölvurannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Steinarr segir gríðarlega breytingu hafa orðið á málaflokknum síðustu ár. Gagnamagnið hafi aukist og því sé dreift víðar. Sífellt meira krefjandi verði að taka á brotum sem þessum og erfiðustu brotin beinist helst gegn konum og börnum.

Sigríður Björk segir að nú séu gerðar ráðstafanir til að samnýta tækjakost, mannskap og þekkingu hjá fjórum embættum til að ná betur utan um rannsóknir glæpa á netinu – lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, lögreglunnar á Suðurnesjum, ríkislögreglustjóra og héraðssaksóknara.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×