Innlent

Lögreglan boðar til blaðamannafundar vegna hvarfs Birnu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 17 í dag vegna hvarfs Birnu Brjánsdóttur. Fundurinn verður í beinni útsendingu á Vísi, Stöð 2 og Bylgjunni. Fylgjast má með blaðamannafundinum hérna.

Birnu hefur verið saknað í rúma viku, eða síðan á aðfaranótt laugardagsins 14. janúar og hefur umfangsmikil leit staðið yfir að henni alla helgina. Á milli 500 og 600 björgunarsveitarmenn hafa leitað að henni í gær og í dag á stóru svæði á suðvesturhorninu. Vísir greindi frá því fyrr í dag að verið væri að endurskipuleggja leitina en ekki hafa fengist frekari upplýsingar aðrar en þær en að björgunarsveitarmenn hafi verið kallaðir í hús.

Þá sendi lögreglan frá sér tilkynningu í dag varðandi það að lífsýni sem tekið var úr rauðri Kia Rio-bifreið sem haldlögð var í vikunni sé úr Birnu. Þar með telur lögreglan það staðfest að hún hafi verið í bílnum en annar mannanna sem grunaður er um aðild að hvarfi hennar og situr í gæsluvarðhaldi vegna þess var með bílinn á leigu þegar Birna hvarf.

Tveir skipverjar af grænlenska togaranum Polar Nanoq eru í einangrun á Litla-Hrauni vegna málsins. Þeir eru grunaðir um manndráp. Héraðsdómur Reykjaness úrskurðaði þá í tveggja vikna gæsluvarðhald síðastliðinn fimmtudag en lögregla fór fram á fjögurra vikna varðhald. Úrskurðurinn var því kærður til Hæstaréttar sem enn á eftir að kveða upp sinn dóm.


Tengdar fréttir

Endurskipuleggja leitina að Birnu

Verið er að kalla björgunarsveitarmenn í hús sem leitað hafa að Birnu Brjánsdóttur í dag því endurskipuleggja á leitina.

Lífsýni úr bílnum er úr Birnu

Lífsýni úr rauða Kia Rio-bílnum voru send utan til rannsóknar og liggur nú fyrir niðurstaða þeirrar rannsóknar þess efnis að lífsýnið er úr Birnu Brjánsdóttur

Styrkir tengingu mannanna við Birnu

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á hvarfi Birnu Brjánsdóttur, á ekki von á því að mennirnir tveir sem sitja í gæsluvarðhaldi grunaðir um aðild að málinu verði yfirheyrðir í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×