Innlent

Lögreglan ætlar að fylgjast með íbúðarhúsnæði eins og kostur er yfir verslunarmannahelgina

Birgir Olgeirsson skrifar
Vísir/Hari
Lögreglumenn munu fylgjast með íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu um verslunarmannahelgina. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu en þar segir að fátt sé óskemmtilegra en að koma heim úr ferðalagi og verða þess var að innbrotsþjófar hafi látið greipar sópa um heimilið.

„Af þeirri ástæðu munu lögreglumenn fylgjast með íbúðarhúsnæði um verslunarmannahelgina eins og kostur er. Lögreglan vill jafnframt hvetja fólk, sem heldur burt af höfuðborgarsvæðinu í lengri eða skemmri tíma, til að ganga tryggilega frá heimilum sínum. Gott ráð er biðja nágranna um að líta eftir húsnæði. Fá þá til að kveikja ljós, fjarlægja póst, leggja í bílastæði o.sfrv. Sömuleiðis er minnt á mikilvægi þess að verðmæti séu ekki skilin eftir í augsýn en þjófar sækjast m.a. eftir fartölvum, myndavélum o.þ.h. hlutum. Þá er rétt að hafa hugfast að GPS-tækjum er oft stolið úr bílum og því nauðsynlegt að gera viðeigandi ráðstafanir þegar ökutæki er yfirgefið,“ segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Þá er fólk einnig hvatt til að láta vita um grunsamlegar mannaferðir og oft geti skipt miklu máli að fá lýsingu á mönnum og bifreiðum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×