Innlent

Lögregla vill ná tali af þessum manni

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Lögregla vill ná tali af þessum manni.
Lögregla vill ná tali af þessum manni.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur óskað eftir því að ná tali af manninum ná meðfylgjandi mynd vegna atviks sem átti sér stað rétt austan við skemmtistaðinn Tivoli bar í Hafnarstræti í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 19. febrúar síðastliðinn.

Þeir sem telja sig þekkja til mannsins, eða vita hvar hann er að finna, eru einnig beðnir um að hafa samband við lögregluna í gegnum síma, á Facebook eða í gegnum netfangið 0111@lrh.is.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×