Innlent

Lögregla varar við svikabeiðnum frá ættingjum og kunningjum

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Mikið hefur borið á því síðustu misseri að ungt fólk taki svokölluð smálán.
Mikið hefur borið á því síðustu misseri að ungt fólk taki svokölluð smálán. Vísir/Valli
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við svikatilraunum á netinu, sem berast gjarnan frá ættingjum og kunningjum. Um er að ræða svokallað smálánasvindl, sem töluvert hefur borið á í fréttum að undanförnu.

Netsvindlið virkar á þá leið að fólk fær senda beiðni í gegnum skilaboðaþjónustu Facebook, eða annan sambærilegan miðil, frá ættingjum, gömlum kunningjum eða jafnvel ókunnugu fólki. Í skilaboðunum er fólk beðið um upplýsingar um reikningsnúmer og kennitölu til að hægt sé að leggja pening inn á reikning þess sem svindlað er á. Síðan á hann að millifæra fjármunina aftur til baka á þann sem sendir beiðnina eða einhvern annan.

Ginntir til þess að taka smálán

Skilaboðin eru oft á þá leið að viðkomandi segist vera í vandræðum, jafnvel í útlöndum, og að einhver tæknileg vandræði hafi komið upp í sambandi við debetkort, heimabanka eða millifærslur. Næstu vendingar í málum sem þessum eru oft þær að millifærslan, sem lögð er inn á reikninginn, er í raun smálán sem tekið er í nafni reikningseiganda.

Dæmi um smálánasvindl.Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
Fyrr í mánuðinum var greint frá sambærilegu máli sem kom inn á borð Neytendasamtakanna hvar maður var beðinn um að millifæra pening á gamlan vin. Þeirri beiðni lauk með því að gamli kunninginn, sem sagðist einmitt staddur í útlöndum, hafði tekið smálán í nafni mannsins og platað hann til að millifæra andvirði þess inn á sig.

Að sögn lögreglu er afar mikilvægt að fólk vari varlega í slíkum viðskiptum og gefi ekki upp reikningsnúmer, né heldur millifæri á aðra, nema að vera alveg viss um að viðskiptin séu traust.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×