Innlent

Lögregla rannsakar úlpuþjófnað í FSU

Birgir Olgeirsson skrifar
Fjölbrautaskóli Suðurlands.
Fjölbrautaskóli Suðurlands. Vísir/Egill Bjarnason
Lögreglan á Suðurlandi rannsakar úlpuþjófnað sem átti sér stað Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi í morgun. Þegar Vísir náði tali af lögreglunni voru lögreglumenn enn á vettvangi og því lítið vitað um umfang þjófnaðarins sem átti sér stað í fatahengi skólans.

Aðstoðarskólameistari FSU, Þórarinn Ingólfsson, sagði málið til skoðunar þegar Vísir náði tali af honum og sagði að eftirlitsmyndavélar væru á því svæði sem þjófnaðurinn átti sér stað. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×