Innlent

Lögregla notaði úreltar rannsóknaraðferðir

Snærós Sindradóttir skrifar
Friðrik Brynjar Friðriksson við komuna í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun.
Friðrik Brynjar Friðriksson við komuna í Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun. VÍSIR/VIlli
Ekki var gerð fullnægjandi efnarannsókn á baðvaski og niðurfalli í íbúð Karls Jónssonar eftir andlát hans. Þetta er niðurstaða tveggja matsmanna, þeirra Gillian Leak og Jóhanns Eyvindssonar, sem voru dómkvödd til að leggja mat sitt á gögn morðmálsins á Egilsstöðum. Vitnaleiðslur yfir matsmönnunum hafa staðið yfir síðan klukkan ellefu í morgun.

„Minn skilningur er að vatnslásinn hafi verið tekinn úr vaskinum en ekki hafi verið gerð nein efnafræðileg rannsókn á niðurfalli,“ sagði Gillian í svari sínu við spurningu verjanda Friðriks um rannsókn á baðvaskinum. 

„Ég hef komið á hundruðir morðvettvanga þar sem vatnslásinn er alltaf skoðaður. Við finnum mjög sjaldan blóð í vatnslásinum hinsvegar höfum við óteljandi oft fundið útþynntar leyfar við niðurfall sem og í keðjunni sem heldur tappanum. Blóðið er oft mjög erfitt að sjá en með notkun réttra efna er oft hægt að sjá fölbleika litun á þessum stöðum.“

Saksóknari spurði þá hvort það breytti áliti Gillian að rannsakendur lýstu upp vaskinn með ljósi en fundu ekki blóð í vaskinum. „Nei við myndum ekki einungis treysta á ljós.“

Verjandi Friðriks, Sveinn Andri Sveinsson, spurði Gillian hvort hún teldi þá aðferð sem rannsakendur í málinu á Egilsstöðum notuðu við rannsókn vasksins úrelta. Gillian tók svo til orða: „Ja, það má orða það þannig að við í réttarmeinafræðinni hættum að gera þetta fyrir rúmlega tíu árum síðan.“

Undir þetta tekur Jóhann Eyvindsson, hinn íslenski matsmaður sem dómkvaddur var til að fara yfir gögn málsins. "Ég hef lært aðferðir við að gera þetta með því að taka strokur en þetta með vatnslásinn er eitthvað sem ég þekki ekki." 

Skýrsla var tekin af Gillian í gegnum síma í dómsal í dag. Dómtúlkur átti um tíma erfitt með að heyra nægilega vel í henni og andrúmsloft dómsalsins bar með sér að flestir vildu að vitnaleiðslan kláraðist fljótt. Þá ríkti misskilningur á milli Gillian og dómtúlksins um hvaða sönnunargögn og myndir var verið að ræða hverju sinni sem olli enn frekari töfum á vitnaleiðslunni. 

Friðrik Brynjar Friðriksson, sakborningur í málinu, var sérstaklega orðinn óþolinmóður. Hann skók sér mikið í sætinu og var  haldinn stöðugri fótaóeirð. Vegna nauðsynjar þess að túlka orð Gillian tóku allar fyrirspurnir helmingi lengri tíma og gengu mun verr fyrir sig. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×