Innlent

Lögregla leitar Agnesar Helgu

Bjarki Ármannsson skrifar
Agnes Helga Sigurpálsdóttir.
Agnes Helga Sigurpálsdóttir.
Lögreglan á Suðurnesjum leitar að Agnesi Helgu Sigurpálsdóttur, fimmtán ára stúlku frá Reykjanesbæ. Síðast er vitað um ferðir Agnesar um klukkan 15:00 þann 13. september, á föstudag. Þá sást til hennar í Hafnarfirði.


Agnes er 160 sentímetrar á hæð með ljóst axlarsítt hár. Hún var klædd í svartar leggings, ljósgráa víða joggingpeysu og svarta og bleika Adidas skó.

Þeir sem verða varir við ferðir Agnesar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við
lögregluna á Suðurnesjum í síma 420-1800.
 
Uppfært kl. 16.47: Agnes er nú fundin. Lögregla þakkar veitta aðstoð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×