Erlent

Lögregla í Manchester lokar á Bandaríkin

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Lögreglumaður stendur vörð fyrir utan íbúðarhús í Manchester í morgun. Rannsókn árásarinnar stendur nú sem hæst.
Lögreglumaður stendur vörð fyrir utan íbúðarhús í Manchester í morgun. Rannsókn árásarinnar stendur nú sem hæst. Vísir/AFP
Lögregluyfirvöld í Manchester, þar sem hryðjuverkamaður sprengdi sig í loft upp og varð 22 manns að bana, hafa hætt að veita bandarískum yfirvöldum upplýsingar um rannsókn árásarinnar eftir að myndum og fréttum af árásinni var lekið í fjölmiðla. Þetta kemur fram í frétt BBC.

Mikil reiði greip um sig innan breskra yfirvalda þegar myndir, sem sýndu brak úr sprengingunni í Manchester, birtust í bandaríska miðlinum New York Times.

Áður hafði nafni árasarmannsins, Salman Abedi, einnig verið lekið í bandaríska fjölmiðla örfáum klukkustundum eftir árásina.

Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, mun lýsa yfir áhyggjum sínum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, varðandi losaralegan brag á meðferð upplýsinga málsins á fundi NATO-ríkja sem fram fer í Brussel í dag.

Lögregluyfirvöld í Manchester hafa hingað til veitt breskum stjórnvöldum, auk stjórnvalda Bandaríkjanna, Ástralíu, Kanada og Nýja-Sjálands, upplýsingar um framgang rannsóknar á árásinni. Nú verður tímabundið lát á upplýsingaflæði til Bandaríkjanna vegna trúnaðarbrestsins. Lögreglan í Manchester er sögð „ævareið“ vegna málsins. Þá er talið að lögregla í Bandaríkjunum beri ábyrgð á lekanum frekar en Hvíta húsið.

Fleiri handteknir og fórnarlömb nafngreind

Tveir menn voru handteknir í Withington í grennd við Manchester í morgun. Átta karlmenn eru nú í haldi lögreglu í tengslum við árásina, þar á meðal faðir og tveir bræður árásarmannsins. Konu, sem handtekin var í gær, hefur verið sleppt. Þá herma heimildir BBC að lögreglu hafi borist símtöl frá tveimur manneskjum fyrir árásina, sem vöruðu við öfgaskoðunum Abedi.

19 af þeim 22 sem létu lífið í árásinni hafa verið nafngreind, þar á meðal Elaine McIver, lögreglukona á frívakt, Wendy Fawell, fimmtug kona sem stödd var á tónleikunum með börnum sínum, Eilidh MacLeod, 14 ára, og parið Chloe Rutherford og Liam Curry.

Einnar mínútu þögn í minningu fórnarlamba árásarinnar í Manchester verður nú klukkan 11 að breskum tíma eða klukkan 10 að íslenskum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×