Lögregla í átökum við mótmælendur

Fréttablaðið Erlent 11. febrúar 2012 05:00
Íbúar Grikklands eru ævareiðir vegna nýrra niðurskurðaráforma ofan á allan þann niðurskurð sem skert hefur lífsgæði almennings verulega.
Íbúar Grikklands eru ævareiðir vegna nýrra niðurskurðaráforma ofan á allan þann niðurskurð sem skert hefur lífsgæði almennings verulega. nordicphotos/AFP
Átök mótmælenda við lögreglu brutust út í Aþenu í gær, þegar tveggja daga mótmælaaðgerðir gegn nýjum niðurskurðaráformum stjórnvalda hófust.

Gríska stjórnin samþykkti niðurskurðaráformin í vikunni, að kröfu Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Enn er þó langur vegur frá því að þessi áform séu í höfn, og óvissa ríkir þar með einnig um fjárhagsaðstoðina frá ESB og AGS sem á að koma í veg fyrir að gríska ríkið fari í greiðsluþrot í næsta mánuði.

Evangelous Venizelos fjármálaráðherra segir að nú sé komið að því að gríska þingið taki úrslitaákvörðun um það hvort Grikkland verði áfram á evrusvæðinu.

Niðurskurðaráformin verða líklega borin undir atkvæði á þinginu á morgun, en í gær reyndu leiðtogar stjórnarflokkanna að tryggja stuðning þingflokka sinna við áformin.
Þingmenn eru tregir til að samþykkja áformin, sem leggja enn frekari byrðar á grísku þjóðina í viðbót við þann niðurskurð sem þegar er búið að samþykkja.

Georgios Karatzaferis, leiðtogi eins af stjórnarflokkunum þremur, hefur þegar sagt að hann ætli ekki að samþykkja nýju niðurskurðaráformin. Það eitt mun þó ekki verða stjórninni að falli því Karatzaferis er leiðtogi LAOS, sem er litli flokkurinn í stjórninni.

LAOS er flokkur hægri þjóðernissinna, en aðrir flokkar í stjórninni eru sósíalistaflokkurinn PASOK og íhaldsflokkurinn Nýtt lýðræði, flokkar sem löngum hafa verið höfuðandstæðingar í grískri pólitík en hafa samtals 236 þingsæti af 300.

Stjórnin samþykkti á fimmtudag að skera verulega niður í heilbrigðismálum, varnarmálum og sveitarstjórnarmálum, en að auki verður 15 þúsund ríkisstarfsmönnum sagt upp störfum.

Einnig verða lögbundin lágmarkslaun lækkuð um 20 til 30 prósent og eftirlaun ríkisstarfsmanna lækkuð um 15 prósent. Að auki þurfa Grikkir að finna leið til að spara 325 milljarða evra í viðbót áður en ESB og AGS fallast á að veita þeim 130 milljarða evra í fjárhagsaðstoð.

Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í byrjun næsta mánaðar verður svo tekin afstaða til þess hvort Grikkir teljist hafa uppfyllt þau skilyrði sem þeim eru sett.
gudsteinn@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 25. maí. 2012 10:40

Bræ'ðralag múslima segist hafa forystu

Talning atkvæða er sumstaðar hafin í Egyptalandi en kosið var um nýjan forseta landsins í ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 10:36

Þingmenn slógust í þingsal

Þingfundur í Úkraínu leystist upp í allsherjar áflogum í gær. Slagsmálin brutust út á mill...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 09:14

Getnaðarvarnarpilla fyrir karlmenn í sjónmáli

Vísindamenn eygja nú möguleika á því að þróa getnaðarvarnarpillu fyrir karlmenn. Genafræði...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:53

Mörgæs á flótta handsömuð í Tókíó

Yfirvöld í Japan hafa loksins handsamað mörgæs sem flúði úr sædýrasafni í Tókíó fyrir tvei...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 11:00

Ætlar ekki að áfrýja dómi

Noregur Anders Behring Breivik mun ekki áfrýja fangelsisdómi yfir sér ef hann verður úrsku...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:57

Hollande heimsækir Afganistan

Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakka mætti óvænt í heimsókn til Afganistan í morgun...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 08:00

Læknast hraðar og síður veikir

Karlkyns bavíanar sem eru í ráðandi stöðu í sínum hóp verða sjaldnar veikir og sár þeirra ...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 07:30

Pottur talinn brotinn í skráningu Facebook

Kærumál streyma inn vegna vandræðagangs við markaðsskráningu Facebook. Hafin er rannsókn á...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 05:30

Mannréttindabrot framin á báða bóga

Bæði stjórnarherinn og sveitir uppreisnarmanna stunda manndráp og pyntingar í Sýrlandi. Me...  

Meira
Erlent 25. maí. 2012 04:00

Áhyggjur af afdrifum fjölskyldu Chen

Eldri bróðir kínverska flóttamannsins Chen Guangcheng, Chen Guangfu, hefur flúið heimabæ s...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 23:55

Loftsteinadrífa skellur á Jörðinni

Bandaríski geimfarinn Don Pettit hefur mikið dálæti af því að deila ljósmyndum sínum. Þett...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 22:33

"Þetta er Nelson. Hann stal símanum mínum"

Bandarísk kona sem glataði iPhone snjallsímanum sínum í skemmtisiglingu fyrir nokkru hefur...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 22:05

Starfsfólk Heathrow undirbýr sig fyrir Ólympíuleikana

Starfsfólk Heathrow flugvallarins í Lundúnum undirbýr sig nú fyrir Ólympíuleikana sem hald...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 21:06

Tíu þjóðir komust áfram í Eurovision

Mikið var um dýrðir í Bakú í kvöld þegar seinni undankeppni Eurovision fór fram. Tíu þjóði...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 20:41

Rætt um lofthelgi Íslands í Finnlandi

Forsætisráðherra Finnlands, Jyrki Katainen, neitaði í dag ásökunum stjórnarandstæðinga um ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 15:56

Fellibylurinn Bud færist nær Mexíkó

Fellibylurinn Bud færist nú nær ströndum Mexíkó en hann er fyrsti fellibylur ársins á Kyrr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:59

Nektarmynd af forsetanum harðlega gagnrýnd

Afríska þjóðarráðið, stærsti stjórnmálaflokkur Suður Afríku og flokkur forsetans Jakobs Zu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 10:28

Neitaði að fljúga með kvenkyns flugstjóra

Karlmanni var vísað út úr flugvél á vegum brasilíska flugfélagsins Trip Airlines eftir að ...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:15

Dönsk sveitarfélög banna reykingar í vinnunni

Starfsmenn hins opinbera í Danmörku sem reykja eiga nú undir högg að sækja. Fjögur sveitar...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:13

Dæmdur í langa fangelsisvist

Shakil Afridi, læknir i Pakistan, hefur hlotið þungan fangelsisdóm og fésekt að auki fyrir...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 12:02

Plastpokar bannaðir í Los Angeles

Borgarstjórn Los Angeles borgar hefur ákveðið að banna alfarið notkun plastpoka í verslunu...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 11:55

Ólympíuleikar 2020: Þrjár borgir koma til greina

Þrjár borgir eru eftir í baráttunni um að fá að halda Ólympíuleikana árið 2020. Ekki er rá...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 08:06

Góð þátttaka í Egyptalandi

Forsetakosningarnar í Egyptalandi fara nú fram annan daginn í röð en tvo daga þarf til end...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 07:00

Langar biðraðir við kjörstaði

„Byltingin hefur breyst mikið. Bæði til hins betra og til hins verra,“ segir W...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 05:00

Biðin styttist hjá Assange

Hæstiréttur Bretlands tilkynnti í gær að á miðvikudaginn í næstu viku verði kveðinn upp úr...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 04:00

Líkjast persónuleika manna

Simpansar og órangútanar eru með persónuleika sem líkjast mjög persónuleika manna. Þetta e...  

Meira
Erlent 24. maí. 2012 03:30

Ræddu útgáfu evruskuldabréfa í Brussel

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna hittust á fundi í Brussel í gærkvöldi og ræddu fjárhagsva...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Lögregla í átökum við mótmælendur