Innlent

Lögregla hefur hafið rannsókn á eldsvoðanum á Akureyri

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Lögreglan á Akureyri hefur hafið rannsókn.
Lögreglan á Akureyri hefur hafið rannsókn. Vísir/Pjetur
Lögreglan á Akureyri hefur hafið rannsóknarvinnu í fóðurverksmiðjunni Bústólpa á Oddeyrartanga á Akureyri. Ekki er vitað um tjón eða eldsupptök að svo stöddu. 

Mikill viðbúnaður var vegna eldsins í gær en að sögn sögn slökkviliðsins á Akureyri gengu slökkvistörf vel fyrir sig í nótt og tók um 45 mínútur að slökkva eldinn.

Störfum slökkviliðsins lauk með fullu á svæðinu um hálf tvö í nótt.


Tengdar fréttir

Eldur í Bústólpa á Akureyri

Allt tiltækt slökkvilið á Akureyri var kallað út um klukkan hálf tíu í kvöld eftir að tilkynning barst um eld í fóðurverksmiðju Bústólpa á Oddeyrartanga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×