Innlent

Lognið á undan storminum

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Vilhelm
Spáð er austan og suðaustan 8 til 13 metrum á sekúndu og rigningu eða slyddu með köflum í dag. Eftir hádegi er von á sunnan og suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu og skúrum eða él. Með kvöldinu verður vindur hægari og úrkomulítið, en víða vægt frost.

Á morgun er sömuleiðis spáð hægri austlægri eða breytilegri átt og mun vera úrkomulítið. Annað kvöld skellur á suðaustan átt, 13 til 18 m/s og slydda eða rigning.

Þetta kemur fram á vef Veðurstofu Íslands.

Einnig má sjá frekari upplýsingar á veðurvef Vísis.

Við spá Veðurstofunnar segir að kalla megi rólegheitaveðrið í dag lognið á undan storminum. Því dagana á eftir verði „þrálátur lægðagangur með umhleypingum og tilheyrandi hvassviðri. Á morgun nálgast dýpkandi lægð sunnan úr hafi og annað kvöld veldur hún suðaustanhvassviðri á Suður- og Vesturlandi með rigning eða slyddu.“

Horfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Hæg suðaustlæg eða breytileg átt, en 10-15 m/s og rigning eða slydda S- og V-lands um kvöldið. Hiti kringum frostmark.

Á fimmtudag:

Suðaustan 18-23 m/s og talsverð slydda eða rigning framan af degi og hiti 0 til 5 stig, en snýst síðan í suðvestan 13-18 með éljum og kólnar.

Á föstudag:

Suðvestan 10-15 m/s og dálítil él, en úrkomulítið NA-til. Dregur úr vindi og úrkomu um kvöldið. Hiti kringum frostmark.

Á laugardag:

Suðaustanhvassviðri með rigningu og hlýnandi veðri, en suðvestlægari um kvöldið.

Á sunnudag:

Líkur á ört vaxandi suðaustanátt með rigningu og hlýindum.

Á mánudag:

Útlit fyrir suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum og heldur kólnandi veður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×