Lögmenn Annþórs ósáttir við framgang lögreglu 24. maí 2012 16:42
Lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar, sem grunaður er um að hafa banað Sigurði Hólm Sigurðssyni, samfanga sínum á Litla Hrauni ásamt Berki Birgissyni, segja að ekkert bendi til þess, á þessu stigi, að Annþór eigi hlut að máli. Hann hafi staðfastlega neitað sök. Í yfirlýsingu sem þeir sendu fjölmiðlum, síðdegis í dag, segir að réttarmeinafræðingur telji sig ekki geta fullyrt hvort sú blæðing, sem vitnað hefur til að hafi leitt Sigurð til bana, væri yfir höfuð af mannavöldum eða ekki. Þeir gagnrýni einnig lögreglu og spyrja hvort það teljist eðlileg vinnubrögð í réttarríki að sakborningar og verjendur þeirra fái fyrst upplýsingar um rannsóknargögn frá fjölmiðlum. Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan. Reykjavík, 24. maí 2012 Undirritaðir lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar vilja að gefnu tilefni koma á framfæri við fjölmiðla eftirfarandi yfirlýsingu: „Undanfarna daga hafa fjölmiðlar farið mikinn í fréttaflutningi í tengslum við andlát Sigurðar Hólm Sigurðssonar, sem lést í fangelsinu að Litla-Hrauni fimmtudaginn 17. maí sl. Skjólstæðingur okkar hefur réttarstöðu sakbornings í málinu og var fyrr í dag, með úrskurði héraðsdóms Suðurlands, gert að sæta einangrun í gæsluvarðhaldi til 13. júní nk. Hefur gæsluvarðhaldsúrskurðurinn þegar verið kærður til Hæstaréttar. Svo sem rakið hefur verið í fjölmiðlum komst réttarmeinafræðingur að þeirri niðurstöðu að Sigurður hafi látist af völdum innvortis blæðinga, en þess skal jafnframt getið að sami réttarmeinafræðingur taldi sig ekki geta fullyrt hvort sú blæðing, sem vitnað er til, væri yfir höfuð af mannavöldum eða ekki. Því síður er ekkert sem bendir til þess, á þessu stigi málsins, að skjólstæðingur okkar eigi þar einhvern hlut að máli. Þá hefur skjólstæðingur okkar staðfastlega neitað sök í málinu. Undirritaðir lögmenn Annþórs Kristjáns Karlssonar hafa á þessu stigi málsins ekki fengið afhent nein rannsóknargögn og hafa þurft að reiða sig á upplýsingar sem fram hafa komið í fjölmiðlum. Á sama tíma og þeir sem fara með rannsókn málsins „verjast allra frétta" vegna þess hve rannsóknin er „á viðkvæmu stigi" streyma upplýsingar, sem lögregla ein hefur undir höndum, til fjölmiðla um gang málsins. Spyrja má hvort það geti talist eðlileg vinnubrögð í réttarríki að sakborningar og verjendur þeirra fái fyrst upplýsingar um rannsóknargögn, og eftir atvikum málavexti, í jafnalvarlegu máli og hér um ræðir, frá fjölmiðlum?" Virðingarfyllst, Guðmundur St. Ragnarsson, hdl. Hólmgeir Elías Flosason, hdl.
Mál Annþórs og Barkar Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Marius látinn laus Erlent Séra Guðni Már kveður Ísland Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Fleiri fréttir Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Vilhjálmur sagði af sér þingmennsku Andmæla fundarboði aðalfundar Sósíalista Konukot og börn í brottfararstöð í brennidepli í kvöldfréttum Séra Guðni Már kveður Ísland Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi „Svaraðu spurningunni“ Sérsveitaraðgerð á Eskifirði Tjón upp á hundrað milljónir og eldsupptök ráðgáta Nær tvöföldun umsókna um meistaranám „Beinin af Jónasi skipta andskotans engu máli“ Verðlaunuðu Evrópusinna fyrir að sporna gegn óreiðu Leit að arftaka Höllu Bergþóru hafin: „Kemur í ljós“ Eldur í vinnuvél á Álfsnesi Vildi vita hvort varnarsamningi við Bandaríkin yrði teflt í tvísýnu með ESB-viðræðum Enn í lífshættulegu ástandi Lýsingar á ófremdarástandi við Konukot komi á óvart ESB á Alþingi, Konukot og sáttur Bubbi Samkomulag um landaheitið Ísland undirritað „Grundvallaratriði í rekstri að fólk komist til og frá“ Eftirlýstur hrækti á starfsmann skemmtistaðar og lögreglu Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Sjá meira