Innlent

Lögmaður Árna og Mjölnis: Steggurinn tók vissa áhættu með því að stíga inn í hringinn

Birgir Olgeirsson skrifar
Árni Ísaksson, bardagakappi.
Árni Ísaksson, bardagakappi. Vísir/Valli
„Þessi málshöfðun á ekki neinn rétt á sér,“ segir Fróði Steingrímsson, lögmaður Árna Ísakssonar og Mjölnis, um stefnu fasteignasalans Lárusar Óskarssonar gegn bardagakappanum og bardagaklúbbnum.

Lárus fótbrotnaði þegar hann mætti Árna í bardagahring í Mjölni en það var hluti af steggjun sem félagar Lárusar höfðu skipulagt. Lárus segist hafa þurft að fresta brúðkaupinu vegna atviksins og að það hafi haft mikil áhrif á líf hans.

Stundin sagði fyrst frá málinu í gær en Vísir ræddi einnig við Lárus í gær þar sem hann sagði lækna hafa þurft að setja skrúfur og nagla í fótinn til að tjasla honum saman og að beinbrotið hefði haft mikil áhrif á vinnuna og daglegt líf. „Þetta er eitthvað sem maður þarf að lifa með dag frá degi,“ sagði Lárus við Vísi.

„Mér finnst það í fyrsta lagi blasa við að þegar maður stígur inn í bardagahring þá taki hann með því vissa áhættu með því að taka þátt í svona contact-sporti og ef þetta hefur gerst með þeim hætti sem hann heldur fram þá er augljóst að það er um að ræða slys eins og gerist í snertiíþróttum,“ segir Fróði um málið.

Hann heldur því fram að ekkert liggi fyrir í málinu sem sýni fram á að nokkur hafi sýnt af sér vanrækslu eða að meiðsl Lárusar megi rekja til saknæmrar háttsemi. „Hvorki Árna né Mjölni. Það verður að leysa úr þessu fyrir dómsólum,“ segir Fróði en um er að ræða viðurkenningarmál þar sem tekist verður á um hvort að Árni eða Mjölnir beri ábyrgð á því tjóni sem Lárus telur sig hafa orðið fyrir.

Ef dómurinn fellst á þau sjónarmið Lárusar er grundvöllur fyrir því að leggja fram skaðabótakröfu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×