Íslenski boltinn

Logi kveður Pepsi-mörkin: Hörður Magnússon hlýtur að fara að fá þjálfaratilboð

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Ólafsson, nýráðinn þjálfari Víkinga, var í viðtali hjá Arnari Björnssyni, í kvöldfréttum Stöðvar tvö en Logi tók við Víkingsliðinu í dag

Logi Ólafsson, sem er að koma aftur í Víkina eftir 25 ára fjarveru, verður eftirmaður Milos Milojevic sem hætti með Víkinga fyrir síðustu helgi og tók síðan við Blikum á mánudaginn.

Víkingar hafa tapað þremur deildarleikjum í röð, nú síðast á móti Blikum undir stjórn Dragan Kazic, og er liðið í 9. sæti eftir fjóra leiki. Næsti leikur er á móti nýliðum KA fyrir norðan á laugardaginn.

„Það er bara tilhlökkun að takast á við þetta verkefni,“ sagði Logi við Arnar en var hann ekki hættur í þjálfun?

„Ég var hættur og hef ekki sóst eftir þjálfarastarfi en svo kemur þetta upp með Víking, félag sem ég stend í töluverði þakkaskuld við. Þetta var það félag sem gaf mér tækifæri fyrir aldarfjórðungi síðan og það toguðu því einhverjar taugar í þegar þetta var ákveðið,“ sagði Logi.

„Eins og knattspyrnuþjóðin veit þá er ekki langt síðan Milos hvarf af braut. Þetta tók ekki langan tíma. Við settumst niður og því lengra sem leið á samtalið því nær komust við hvorum öðrum. Þetta er síðan niðurstaðan,“ sagði Logi.

Víkingar hafa ekki orðið Íslandsmeistarar síðan 1991 en þá þjálfaði Logi liðið. Ætlar hann að gera Víking að meisturum?

„Við skulum spara allar yfirlýsingar en við munum reyna að laga það sem aflögu hefur farið fram að þessu, reyna að bæta leik liðsins og ná einhverjum sigrum í hús. Ég treysti þér og þínum mönnum til að telja stigin í lokin,“ sagði Logi.

„Það er kannski hrokafullt að fara að lýsa því yfir að það verði strax einhverjar áþreifanlegar breytingar á liðinu í fyrsta leik. Ég er með Dragan og Cardaklija hérna með mér og þeir hafa fylgt þessu liði og þekkja það betur. Við munum í sameiningu reyna að finna það sem hentar best þessu liði. Við þurfum góða liðsheld, þurfum stemmningu í liðið og smá ákefð,“ sagði Logi.

Pepsi-mörkin missa nú Loga en hann er enn einn knattspyrnuspekingur Pepsi-markanna sem stekkur inn í þjálfarastarf.

„Það hefur verið skemmtilegur tími. Frá því að ég lauk störfum í Garðabæ 2013 þá hef ég  verið í þeim starfgeira hvort sem er að lýsa leikjum eða vera í Pepsi-mörkunum. Þetta eru allt góðir strákar sem gjarnan fá tilboð um þjálfun nema einn. Hörður Magnússon hefur ekki ennþá fengið tilboð en það stendur vonandi til bóta,“ sagði Logi brosandi að lokum.

Það er hægt að horfa á allt viðtalið í spilaranum hér fyrr ofan. 


Tengdar fréttir

Milos: Þeir tala alltaf illa um fólk

Milos Milojevic vísar ásökunum framkvæmdastjóra Víkings R. til föðurhúsanna og segir að stjórn félagsins hafi valið markmannsþjálfarann Hajrudin Cardakilja fram yfir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×