Körfubolti

Logi: Orðnir gott körfuboltalið á evrópskan mælikvarða

Óskar Ófeigur Jónson skrifar
Logi Gunnarsson var öflugur í kvöld.
Logi Gunnarsson var öflugur í kvöld. vísir/vilhelm
Logi Gunnarsson var sá leikmaður landsliðsins sem var búin að bíða lengst eftir því að komast með íslenska landsliðinu á stórmót en það gæti ræst á næsta ári eftir sigurinn á Bretlandi í London í kvöld. Ísland er öruggt með annað sætið í riðlinum en sex af sjö liðum í öðru sæti fara inn á EM 2015.

„Þegar maður er ekki 110 prósent viss um að vera kominn á EM þá vill maður halda aðeins aftur af sér. Við létum eðlilega aðeins tilfinningarnar í ljós eftir leikinn því við vorum að stíga skref í íslenskri körfuboltasögu sem aldrei höfðu verið stigin áður," sagði Logi.

„Við erum eiginlega komnir alla leið en það er alltaf þetta aðeins sem er eftir. Við ætlum bara að bíða og sjá hvað gerist. Við förum bara í Bosníuleikinn til þess að reyna að vinna hann og vinna hann með ellefu stigum þannig að við tökum fyrsta sætið í riðlinum," sagði Logi brosandi. Íslenska liðið tryggði sér sigurinn með enn einni endurkomunni.

„Það er búinn að vera stíllinn okkar og bragurinn yfir leik okkar að koma alltaf til baka og gefast aldrei upp. Við gerðum það á móti Bosníu og það var mikilvægt að tapa ekki stórt þar. Eins í kvöld þegar við komum til baka eftir að hafa verið þrettán stigum undir í þriðja leikhluta. Þetta er okkar stíll að gefast aldrei upp," sagði Logi og bætti við:

„Það eru örugglega margir hissa í evrópska körfuboltaheiminum að sjá hvað er að fara að gerast," sagði Logi brosandi.

„Þetta er svo mikill liðskörfubolti sem við spilum. Það skorar einn mest í einum leik og svo kemur annar og stígur upp í næsta leik. Við gerum þetta líka fyrir hvern annan," sagði Logi.

„Það samgleðjast allir þeim sem gengur vel hjá og við erum bara frábært körfuboltalið," sagði Logi. Það þarf stærðfræðing til þess að reikna út hversu miklar líkur er að annað sætið í okkar riðli nái að vera eitt af þeim sex sem skila EM-sæti.

„Þetta er mjög há prósenta og hún er með okkur. Við höldum áfram stefnunni okkar og að fara í alla leiki eins og við höfum verið að gera. Við erum búnir að spila frábærlega og núna bætum við bara í fyrir síðasta leikinn," sagði Logi.

„Við erum komnir mjög langt og næstum því alla leið. Við erum mjög ánægðir með hversu samrýndir við erum sem lið. Við erum líka orðnir gott körfuboltalið á evrópskan mælikvarða," sagði Logi.

„Við erum sameiginlega, allir í þessu körfuboltaliði, að færa íslenskan körfubolta upp á næstra plan sem ekki allir áttu von á eða héldu að gæti gerst. Þetta er stórt og mikið kvöld í íþróttasögunni á Íslandi," sagði Logi að lokum.


Tengdar fréttir

Leik lokið: Bretland - Ísland 69-71 | Strákarnir eru á leiðinni á EM

Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni á EM eftir frábæran 71-69 endurkomusigur á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld. Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en gafst ekki upp og tryggði sér sigurinn með stórkostlegum seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×