Í kvöld ætlar kórinn minn, Heykvíslakór góða fólksins, að halda tónleika í heimahúsum þar sem athygli er vakin á jafn fúlum og ósexí hlutum og mannréttindabrotum. Kórinn hefur áður haldið tónleika við ýmis tækifæri. Við gólum fúlt á fyndna kalla, görgum margraddað inn í athugasemdakerfi fjölmiðla og samskiptasíðna með alls konar skoðanir á því sem fólk lætur þar frá sér, við leyfum okkur meira að segja að finnast ekki allir brandarar fyndnir. Okkur finnst við að sjálfsögðu hafa himin höndum tekið (af lífi) í kvöld að fá enn eitt tækifærið til að banna.
Við góða fólkið erum nefnilega valdamesta fólk í heimi. Sumir segja að við þurfum ekki annað en að benda á það sem okkur finnst athugavert og þar með sé það bannað. Ef við gagnrýnum opinberar skoðanir eða listaverk einhvers höfum við skert tjáningarfrelsi viðkomandi svo hann á ekkert eftir nema þjáningarfrelsi hins hörundsára snillings sem hættir að þora að tjá sig á hnyttinn og ögrandi hátt af ótta við að einhver hafi á því skoðun. Samkvæmt ákveðinni orðræðu tökum við fólk meira að segja af lífi, án dóms og laga, einungis með því að benda á eitthvað sem það hefur sagt og gert opinberlega. Áfram kvíslakór!!!
Tjáningarfrelsið eru mikilvæg mannréttindi. Og við góða fólkið þurfum svo sannarlega að gæta okkar áður en við beitum því til þess að viðra skoðanir okkar á mönnum og málefnum. Því auðvitað mega allir segja allt. Alltaf. Nema náttúrlega þeir sem hafa skoðanir á skoðunum og tjáningu annarra. Tjáningarfrelsið er ekki fyrir þá, enda eru þeir oftast bara fúlir og leiðinlegir og kunna ekki að meta gott grín. En það að tjá sig opinberlega hlýtur að kalla á viðbrögð opinberlega, annars færi tjáningin fram í einrúmi, er það ekki?
Ég vil að lokum taka undir orð konu sem ég met mjög mikils: „Eigi valdir einstaklingar eða hópar að vera undanþegnir tjáningarfrelsinu, hvort sem það er á forsendum virðingar, hefða, trúarbragða eða pólitískrar rétthugsunar, getum við allt eins lagt það af." Heykvíslakórinn á rétt á að gera athugasemdir við opinbera hegðun, atferli, framkomu og orðræðu sem honum finnst þörf á að gera athugasemdir við, eins og aðrir.
Tjáningarfrelsi okkar góða fólksins, sem nær ekkert lengra en tjáningarfrelsi annarra hvað varðar aftökur eða lagasetningar, ber líka að virða. Í tjáningarfrelsi felst að allir megi segja sína skoðun. Líka góða fólkið.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fyrstu önn mína í grunnskóla gekk ég í barnaskólann á Stokkseyri. Á miðjum vetri fluttu foreldrar mínir svo á Akranes þar sem pabbi hafði fengið betra skipspláss. Sumarið eftir fengum við systurnar að...
Meira
Það er bara tvennt sem ég get sagt við fólk sem gerir það undantekningalítið alveg agndofa. Annað er að mér finnist gaman í flugvélum. Það virðist ekki vera algeng skoðun, sem er óskiljanlegt.
Meira
Mér skilst að það sé gjörsamlega dottið úr tísku hjá karlmönnum að eiga flotta bíla. Sjálfsímyndarlega séð fá menn ekkert út úr því lengur. Í dag kaupa menn í ímyndarkrísu sér frekar lítið reiðhjól he...
Meira
Það upplifa allir einhvern tímann eitthvað sem sýnir hvað í þeim býr. Stundir þar sem kringumstæður verða þess konar að það reynir verulega á og innri maður sýnir sig.
Meira
Í sumar fagna ég því að heil átta ár eru síðan ég hóf minn feril sem knattspyrnuáhangandi. Ég er ein af þessum svokölluðu "antisportistum“ sem æfði hestaíþróttir og samkvæmisdans á yngri árum á ...
Meira
Ég veit ekki af hverju ég tók skýra afstöðu í skilnaði sem kom mér ekkert við og ég vissi ekkert um. En ég skyldi halda með Jennifer hvað sem tautaði og raulaði. Þessi Angelina virtist eitthvað tvöföl...
Meira
Ég ætla að fjalla um fegurð í þessum stutta pistli. Þar sem umfjöllunarefnið er víðfeðmt mun ég takmarka mig við fegurð fótboltamarka. Ég er ekki að tala um mörkin sjálf heldur framkvæmdina að skora m...
Meira
Fyrir fáeinum dögum hlustaði ég á sögu sem gerði mig bæði reiðan og dapran í senn. Hér á ég við umfjöllun Kastljóssins um hugmyndir forsvarsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði um lokun hjúkruna...
Meira
Góðan dag. Er þessi trefill rétt merktur? Getur verið að hann kosti 4.000 krónur? - No. It is 400 krónur. - Nú jæja, þá ætla ég að fá hann. - Yes. 400 krónur, please. - Gjörðu svo vel. - Thank you. Ha...
Meira
Tjáningarfrelsi er töff og ég vil hafa rétt á því að segja hvað sem mér sýnist hvenær sem mér sýnist en ég er líka meðvituð um að það sem ég segi hefur áhrif og því fylgir ábyrgð. Á sama tíma og ég he...
Meira
Þegar ég leit í spegil í morgunskímunni um daginn sýndist mér ég sjá eðlu. Eitthvert skriðdýrslegt blik virtist vera í augum mér og svo virtist sem húðin hefði fengið á sig grænleitan blæ.
Meira
Ég hafði gaman af dönsku í grunnskóla. Mál og menning þjóðarinnar lagðist vel í mig, mamma hlýddi mér yfir og yfirleitt fékk ég hæstu einkunnirnar í dönsku.
Meira
Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum...
Meira
Í nýafstöðnum kosningum klæddu gamlar konur sig upp, einhverjir flögguðu, allavega einn fékk ís og enginn gerði þarfir sínar í kjörkassa. ÖSE-menn voru sáttir, herbergi var innsiglað og svo fundið út ...
Meira
Viðbrögðin við úrslitum kosninganna á laugardag voru flest fyrirsjáanleg. Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar og Pírata glöddust en Samfylkingarfólk og stuðningsmenn minnstu flokkanna grétu. Fögnuður Fra...
Meira
Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrítugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkað...
Meira
Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi.
Meira
Vorið 2007 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við völdum. Ég man þá ljúfu tilfinningu sem greip mig við að sjá fréttaljósmyndir af formönnum flokkanna, þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Só...
Meira
Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín ein...
Meira
Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarla...
Meira