Viðskipti innlent

Loftbrú til Liverpool

Benedikt Bóas skrifar
Einstök stemning er á Anfield og eru fjölmargir íslenskir stuðningsmenn að fara um helgina að sjá leik gegn Swansea.
Einstök stemning er á Anfield og eru fjölmargir íslenskir stuðningsmenn að fara um helgina að sjá leik gegn Swansea. vísir/getty
Ferð Úrvals Útsýnar og vefsíðunnar Kop.is til Liverpool um helgina seldist upp á rúmum sólarhring. Þeir aukamiðar sem fóru í sölu skömmu síðar seldust upp á nokkrum klukkustundum. Ferðaskrifstofurnar Vita ferðir, Gaman ferðir og TransAtlantic buðu einnig upp á skipulagða ferð á leikinn og er uppselt hjá þeim öllum. Það má því búast við nokkur hundruð Íslendingum á heimavelli Liverpool, Anfield, þegar Gylfi Sigurðsson og lið hans, Swansea, koma í heimsókn um helgina.

Kristján Atli Ragnarsson
Ferðin var ódýrust hjá Gaman ferðum þar sem hún kostaði 109 þúsund en dýrust hjá Úrvali Útsýn á 135 þúsund. Misjafnt er hvað er innifalið í miðaverðinu. Í kop.is ferð Úrvals Útsýnar er flogið til Birmingham og ekið með rútu til Liverpool. Farið er utan á fimmtudegi og lent á Íslandi á mánudag. Trans­Atlantic flýgur til Man­chester eins og Vita ferðir en aðeins fyrrnefnda félagið býður upp á ferðalag til og frá flugvelli. Hjá Gaman ferðum er flogið til London og þurfa ferðalangar að koma sér sjálfir til Liverpool.

Kristján Atli Ragnarsson, einn af ritstjórum vefsíðunnar kop.is, segir að eftirspurnin eftir miðum á Anfield sé mjög mikil og auðveldlega hefði verið hægt að ferja fleiri Íslendinga til borgarinnar um helgina. „Það verður haugur af Íslendingum þarna. Við stækkuðum ferðina okkar og það seldist upp á nokkrum klukkutímum.“

Alls fékk vefsíðan 70 miða á leikinn og segir Kristján að áhuginn á leikjum Liverpool sé mjög mikill, ekki aðeins frá íslenskum stuðningsmönnum heldur einnig frá stuðningsmönnum annars staðar í heiminum. „Við erum búnir að skipuleggja svona ferðir í fjögur ár og ætluðum að fara tvær ferðir, eina fyrir jól og eina eftir jól. En aðsóknin er svo mikil og uppselt í flestar aðrar ferðir sem eru í boði að það er kominn töluverður þrýstingur á að fara í aðra ferð. Trúlega verða því farnar þrjár ferðir yfir þetta tímabil.“  

Um hverja helgi fara fjölmargir Íslendingar utan til að horfa á leiki í enska boltanum, bæði í skipulögðum ferðum ferðaskrifstofa og á eigin vegum. „Ég hef aldrei farið í fótboltaferð án þess að hitta einhvern sem er líka að fara á leik í enska boltanum. Það er hluti af því að vera Íslendingur á veturna – að styðja sitt lið í Englandi,“ segir hann og hlær.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×