Tónlist

Lofa allsherjar danstónlistarveislu

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Claptone mætir með gullgrímuna.
Claptone mætir með gullgrímuna. Mynd/Henning Schulze
„Þetta er í raun og veru útgáfuteiti hjá nýju plötuútgáfunni YouAreWe frá London, sem samanstendur af tónlistarmönnum frá einhverjum stærstu danstónlistarútgáfum heimsins, Hot Creations og Get Physical,“ segja Kristinn Bjarnason, Ragnar Thor Hilmarsson og Vihjálmur Sanne, sem standa fyrir allsherjar danstónlistarveislu í Hafnarhúsinu 13. desember.

Þekktasta nafnið á tónleikunum er þýski tónlistarmaðurinn Claptone, sem hefur gert það gott síðan hann steig fram á sjónarsviðið fyrir nokkru, en lagið hans No Eyes hefur til að mynda fengið mikla spilun í útvarpinu. „Hann er þekktur fyrir að mæta með gyllta grímu, pípuhatt og hvíta hanska á tónleika,“ segja strákarnir.

Einnig koma fram hinir skosku Wildcats, sem reka YouAreWe ásamt hinum íslensku DJ Ghozt, Sísí Ey og KSF sem hafa endurhljóðblandað fjöldann allan af verkum tónlistarmanna, svo sem James Blake.

Þá munu raftónlistarnördar gleðjast yfir því að Funktion One-hljóðkerfið verður notað í teitinu. „Það á að tjalda öllu til, þú finnur ekki betra klúbbakerfi heldur en þetta,“ segja Kristinn og Ragnar. Einnig bjóða þeir upp á sérstakan Instagram-leik á Fésbókarsíðu viðburðarins þar sem hægt verður að vinna miða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×