Tónlist

Löðrandi í kynþokka og raksápu

Að sögn Helga Vals er myndbandið túlkun leikstjórans á laginu útfrá pælingum þeirra félaga um tónlistarmyndbönd í dag.
Að sögn Helga Vals er myndbandið túlkun leikstjórans á laginu útfrá pælingum þeirra félaga um tónlistarmyndbönd í dag. vísir
Tónlistamaðurinn Helgi Valur gaf á vordögum út sína fjórðu plötu, Notes From the Underground sem hefur vakið mikil og góð viðbrögð.

Helgi frumsýnir nú splunkunýtt myndband hér á Vísi við lagið Leave Me Alone.

Myndbandið er gert af Gústaf Hannibal, sem leikstýrði, klippti og tók upp og Margréti H. Weisshappel sem sá um útlitshönnun.

Að sögn Helga Vals er myndbandið túlkun leikstjórans á laginu útfrá pælingum þeirra félaga um tónlistarmyndbönd í dag, „Við höfum lengi furðað okkur, eins og margir, á því af hverju öll tónlistarmyndbönd þurfa að vera svona óþarflega kynferðisleg“ og Gústaf bætir við „í tónlistarmyndböndum verður allt kynferðislegt, meiraðsegja símar og veggir, allt verður eins og kynlífshjálpartæki. Pælingin hjá okkur er að ef maður getur ekki sigrað eitthvað, þá slæst maður í lið með því“.

Þeir vilja líka koma á framfæri þakklæti til Birgis Þórs Júlíussonar, Árna Tómassonar og Ananda Marga félagsins, Frakkastíg fyrir veitta aðstoð við framleiðsluna.

Í myndbandinu sýnir Helgi Valur á sér ýmsar og nýjar hliðar og löðrar sig m.a. allan í raksápu og glimmeri. En sjón er sögu ríkari.

Myndbandið er frumsýnt hér á Vísi. Gjöriði svo vel.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×