Innlent

Loðnuflotinn við festar á Austurlandi

Vísir/GVA
Allt fór friðsamlega fram þótt allur íslenski loðnuflotinn og á þriðja tug norskra loðnuskipa hafi legið í höfnum á Austurlandi síðan í gær. Skipin leituðu vars undan óveðri  og er þröngt á þingi í mörgum höfnunum, en þau fara væntanlega að tínast út með morgninum þar sem veður er að ganga niður.

Annars eru sárafá fiskiskip á sjó, nema hvað það fer fjölgandi á suðvesturmiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×