Matur

Ljúffengar fylltar tortillur á grillið

Rikka skrifar
visir/svava

Svava Gunnarsdóttir heldur úti hinu vinsæla matarbloggi Ljúfmeti og lekkerheit en þar er að finna dásamlegar uppskriftir. Hérna gefur Svava okkur uppskrift af fylltum tortillum sem tilvaldar eru á sumargrillið.

Fylltar tortillur

tortilla pönnukökur

Philadelphia rjómaostur

Filippo Berio pestó

hráskinka og/eða salami

rauð paprika, skorin fínt

rauðlaukur, skorinn fínt

hunang

furuhnetur

tamarin sósa (má sleppa)

ostur, t.d. hvítmygluostur, fetaostur eða mozzarella

hvítlauksolía (eða önnur olía)

Þurrristið furuhneturnar á pönnu. Þegar þær eru farnar að fá gylltan lit eru þær tilbúnar (passið að þær brenni ekki). Mér þykir gott að hella smá tamarin sósu yfir undir lokin og láta hana sjóða inn í hneturnar. Fyrir 1 poka (ca 70 g) af furuhnetum er passlegt að nota 1 msk af tamarin sósu.

Smyrjið tortillupönukökurnar með rjómaosti. Smyrjið síðan pestó yfir hálfa tortilluna og raðið síðan hráskinku, papriku og rauðlauki yfir. Sáldrið smá hunangi yfir. Setjið ristaðar furunhetur yfir og nokkrar ostsneiðar. Klemmið vel saman og penslið með hvítlauksolíu. Grillið á báðum hliðum þar til osturinn er bráðnaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×