Matur

Ljúffeng ísterta með Daim súkkulaði

Eva Laufey Kjaran skrifar
Ístertan hennar ömmu Stínu

Þessi uppskrift er úr safni ömmu minnar og hefur aldrei klikkað. 

Marengs

3 eggjahvítur

150 g sykur

100 g hakkaðar möndlur

1/2 tsk lyftiduft

1 tsk vanilla

Ísfylling:

2 eggjarauður

4 msk flórsykur

400 ml rjómi

200 g smátt saxað Daim súkkulaði

Aðferð: 

  1. Stífþeytið eggjahvítur og bætið sykrinum saman við í þremur skömmtum. Blandið lyftidufti, vanillu og hökkuðum möndlum saman við með sleikju.
  2. Smyrjið form og hellið marengsblöndunni í formið. Bakið við 175°C í 45 – 50 mínútur. Kælið botninn vel áður en þið setjið rjómafyllinguna ofan á.

Ísfylling:

Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Þeytið rjóma og blandið varlega saman við með sleikju. Saxið niður Daim súkkulaði og bætið út í.

Setjið fyllinguna ofan á marengsbotninn, best finnst mér að hafa þetta bara í forminu. Kakan fer inn í frysti í nokkrar klukkustundir. Þegar þið berið hana fram er gott að fínsaxa súkkulaði og sáldra yfir – en súkkulaðið setur punktinn yfir i-ið. 

Njótið vel. 

Missið ekki af Matargleðinni öll fimmtudagskvöld á Stöð 2. 


Tengdar fréttir

Besta eplakakan

Ég er sólgin í eplakökur og mér finnst þessi gamla og góða sú allra besta. Stökk að utan og mjúk að innan borin fram með þeyttum rjóma.

Himnesk Nutella ostakaka

Ostakökur eru mjög einfaldar og þegar rjómaostur og Nutella koma saman er sannkölluð veisla fyrir bragðlaukana.

Tryllingslega gott karamellupæ

Í síðasta þætti af Matargleði skellti ég í þetta ofureinfalda og bragðgóða karamellupæ með þeyttum rjóma og súkkulaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×