Menning

Ljótasta bókarkápan 2017

Magnús Guðmundsson skrifar
Bókarkápurnar eru órjúfanlegur hluti af heildarupplifun þeirra sem kaupa og lesa bækur
Bókarkápurnar eru órjúfanlegur hluti af heildarupplifun þeirra sem kaupa og lesa bækur
Jólin eru ekki bara hátíð barnanna því þetta er líka árstími bókaútgefanda, rithöfunda og skálda að ógleymdum kápuhönnuðum. Bókarkápurnar eru nefnilega órjúfanlegur hluti af heildarupplifun þeirra sem kaupa og lesa bækur, þó svo að maður ætti auðvitað aldrei að dæma bók eftir kápunni. 

Til gamans var því sett saman sveit sex smekkvísra álitsgjafa sem tók að sér að velja þrjár fallegstu og þrjár ljótustu bókarkápur jólafljóðsins í ár.

Sjá einnig:Slitförin er fallegasta bókarkápan 2017

Ljótasta bókarkápan 2017

1. sæti

Minn tími ­ saga Jóhönnu Sigurðardóttur

Höfundur: Páll Valsson

Kápuhönnun: Alexandra Buhl

Útgefandi: Mál og menning

„Ekki því kápan sé neitt sérstaklega ljót, heldur frekar því hönnunin er blatant stuldur á Time-forsíðu.“

„Ófrumlegt og leiðinlegt. Það þarf ekki að henda í Time Magazine-hermikráku þó svo að orðið „tími“ sé í titlinum. Jóhanna á betra skilið.“

„Tilvísunin í TIME magazine er harkalegt slys sem hæfir engan veginn sögu Jóhönnu sem á ekkert skylt við þessa karllægu íhaldsemi sem kápan ber vitni um.“

„Ekki því kápan sé neitt sérstaklega ljót, heldur frekar því hönnunin er blatant stuldur á Time-forsíðu.“

„Það er ljótt að stela og gera það á svona smekklausan hátt er verra.“

2. sæti

Magni ­ ævisaga Magna Kristjánssonar skipstjóra frá Neskaupstað

Höfundur: Ragnar Ingi Aðalsteinsson

Kápuhönnun: Gunnar Kr. Sigurjónsson

Útgefandi:Hólar

„Strangheiðarleg og alþýðleg heimagerð kápa. Magni serðir umkomulaust stýri í brotsjó - djörf pæling en leturgerðin sekkur þessu.“

„Eitt undarlegasta photoshopkenndarí sem sögur fara af á íslenskri bókarkápu.“

3. sæti

Rúna

Höfundur: Sigmundur Ernir Rúnarsson

Kápuhönnun: Aðalsteinn Svanur Sigfússon

Útgefandi: Bjartur

„Miklu meira eins og auglýsing fyrir reiðnámskeið en kápa á bók.“

„Þetta er eitthvað svo skelfilega væmið og fráhrindandi.“

Álitsgjafar Fréttablaðsins: Berglind Pétursdóttir, Guðmundur Snær Guðmundsson, Haukur Viðar Alfreðsson, Kristín Gunnarsdóttir, Ólöf Skaftadóttir og Tyrfingur Tyrfingsson


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×