Golf

Ljóst hvar Tiger hefur árið 2017

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Tiger endaði í 15. sæti á Hero World Challenge fyrr í þessum mánuði.
Tiger endaði í 15. sæti á Hero World Challenge fyrr í þessum mánuði. vísir/getty
Nú er ljóst hvert verður fyrsta mót Tigers Woods á árinu 2017.

Bandaríski kylfingurinn hefur nefnilega skráð sig til leiks á Genesis Open sem fer fram í Los Angeles í febrúar.

Genenis Open hefur sérstaka þýðingu fyrir Tiger en þetta var hans fyrsta mót á PGA-mótaröðinni árið 1992. Þá var hann aðeins 16 ára.

Tiger, sem er fertugur, sneri aftur á golfvöllinn fyrr í þessum mánuði þegar hann keppti á Hero World Challenge. Það var fyrsta mót Tigers eftir 15 mánaða fjarveru vegna bakmeiðsla.

Tiger endaði í 15. sæti á Hero World Challenge. Hann lék á fjórum höggum undir pari.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×