Innlent

Ljóst að þriggja flokka ríkisstjórn verður að veruleika

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að ríkisstjórnarsamstarf flokksins við Viðreisn og Bjarta framtíð verði að veruleika. Hann segir þingflokk flokksins í aðalatriðum vera sáttan við drög að stjórnarsáttmála sem hann kynnti fyrir honum í dag.

Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins kom saman til fundar í Valhöll í dag til að ræða gang stjórnarmyndunarviðræðna flokksins við Viðreisn og Bjarta framtíð. Fundurinn var boðaður til að kynna fyrir þingflokknum drög að stjórnarsáttmála flokkanna þriggja.

Þetta var þó ekki eini fundurinn sem fór fram í Valhöll í dag. Fulltrúar flokkanna þriggja komu einnig saman til fundar til að ræða hvar og hvernig ný ríkisstjórn verður kynnt. Gert er ráð fyrir að það verði á þriðjudag eða miðvikudag.

Formaður Sjálfstæðisflokksins sagði eftir fundinn að þingflokkurinn hefði farið ítarlega yfir stjórnarsáttmálann.

„Jájá, ég myndi segja að þingflokkurinn sé í öllum aðalatriðum bara sáttur,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.

Engar efnislegar athugasemdir?

„Jújú það er alltaf eitthvað svona sem að menn vilja koma athugasemdum að. En svona yfir það heila tekið að þá eru menn sáttir við þann málefnagrunn sem að menn eru að leggja upp með,“ sagði Bjarni.

Þingflokkurinn sáttur

Ríkisstjórn flokkanna verður með minnsta mögulega meirihluta á Alþingi, 32 þingmenn. Bjarni segir að þessi naumi meirihluti hafi verið ræddur á fundinum, en flokkurinn sé einfaldlega að reyna að vinna með þá stöðu sem upp sé komin.

„Það var ein leið sem við ákváðum að láta reyna á. Hún hefur gengið upp gg við erum sátt við það þingflokkurinn að gera það. Menn geta haft skoðanir á því í allar áttir, málefnalega eða útaf þingstyrk eða öðru, en hingað erum við komin og við ætlum að halda áfram á þessari braut,“ sagði Bjarni.

Er augljóst í þínum huga að þessi ríkisstjórn verði að veruleika?

„Já, ég tel að það sé orðið ljóst.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×