Innlent

Ljósmyndasýning lýsir upplifun barna af flóttamannabúðum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Setningar sem prýða myndirnar eru afrakstur barna sem sóttu smiðju í skapandi skrifum hjá Farahat í flóttamannabúðunum.
Setningar sem prýða myndirnar eru afrakstur barna sem sóttu smiðju í skapandi skrifum hjá Farahat í flóttamannabúðunum. Mynd/íslandsdeild amnesty international
Sýrlenski flóttamaðurinn og læknirinn dr. Bashar Farahat stendur að ljósmyndasýningunni Skilaboð frá flottamannabúðum í samstarfi við Íslandsdeild Amnesty International. Sýningin verður í Hafnarborg – menningar- og listamiðstöð Hafnarfjarðar og verður dagana 25. til 28. október næstkomandi. Sýningin opnar formlega þriðjudaginn 25. október klukkan 17:00.

Ljósmyndirnar sýna börn sem búa í flóttamannabúðunum í Líbanon þar sem 1,1 milljón flóttamanna frá Sýrlandi dvelur við erfiðar aðstæður. Setningar sem prýða myndirnar eru afrakstur barna sem sóttu smiðju í skapandi skrifum hjá Farahat í flóttamannabúðunum. Mohammed Abdullah tók myndirnar og Shadi Jaber sá um uppsetningu.

Gestum sýningarinnar verður boðið að skrifa skilaboð til barnanna í flóttamannabúðunum. Mun Íslandsdeild Amnesty International tryggja að skilaboðin rati rétta leið, í samstarfi við Farahat.

Úr sérfræðinámi í flóttamannabúðir

Dr. Bashar Farahat er 32 ára læknir frá litlu þorpi í norðurhluta Sýrlands. Hann stundaði sérfræðinám í barnalækningum í Aleppo í Sýrlandi og var á þriðja ári af fjórum í starfsnámi þegar hann var handtekinn í júlí árið 2012 fyrir að vera andsnúinn stjórnvöldum.

Hann var leystur úr haldi í byrjun árs 2013 og fékk þá ekki að snúa aftur í starfsnámið. Þremur mánuðum síðar var hann handtekinn á ný. þegar hann var leystur úr haldi í annað skiptið í september 2013, voru flestir vina hans farnir úr landi. Hann var þá síðar kallaður í stjórnarherinn, ella yrði hann handtekinn í þriðja sinn. Frahat neitaði að verða við því og flúði því til Líbanon.

Eftir fimm mánuði í Líbanon leitaði hann til Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna sem aðstoðaði hann til að komast til Bretlands. Í mars árið 2015, eftir 16 mánaða dvöl í Líbanon, fór hann til Bretlands og þar fékk hann dvalarleyfi af mannúðarástæðum til fimm ára.

Dr. Bashar Farahat var gestur Íslandsdeildar Amnesty International í lok nóvember á síðasta ári og hélt hann erindi í Norræna húsinu um varðhaldsvist í Sýrlandi, kerfisbundnar og útbreiddar pyndingar og aðra illa meðferð í varðhaldi, langvarandi áhrif pyndinga og lífið að lokinni fangavist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×