Lífið

Ljóskupartí í heilsulind

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
vísir/þórdís inga
Útgáfu bókarinnar Ladies, Beautiful Ladies var fagnað fyrir stuttu í Sóley Spa á neðstu hæð Icelandir hótel Reykjavík Natura.

Ladies, Beautiful Ladies er framhald rannsókna Birgis Snæbjarnar Birgissonar á ímynd ljóskunnar í samfélagslegu og pólitísku samhengi. Í bókinni eru 299 málverk, máluð á umslög vínilplatna þar sem ljóshærðar, fallegar konur frá sjötta, sjöunda og áttunda áratugnum sitja fyrir.

DJ Sonic hélt uppi stuðinu í útgáfuteitinu og boðið var upp á fagurbleikan mat og drykki í tilefni kvöldsins.

Birgir Guðmundsson og Ragnhildur Ólafsdóttir.
Birgir Snæbjörn, Þorsteinn Örn Guðmundsson og Magnea Þórey.
Bragi Guðlaugsson listsafnari og Hrafnhildur Schram listfræðingur.
Ólöf og Freyja.
Hlín Reykdal og Hadda Fjóla Reykdal.
Björg og Arnar.
Guðrún Helga og Hrafnhildur.
Fagurbleikar veitingar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×