Handbolti

Ljónin töpuðu toppslagnum

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Alexander skilaði sínu en það dugði ekki til.
Alexander skilaði sínu en það dugði ekki til. vísir/getty
Rhein-Neckar Löwen tapaði fyrir HV Vardar í toppslag í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta.

Heimamenn höfðu undirtökin strax frá byrjun leiks og komust mest í sex stiga forystu í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 17-13.

Ljónin náðu aðeins að klóra í bakkann en náðu aldrei að komast nær en í fjögurra marka mun. Lokatölur urðu 30-26.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði fjögur mörk fyrir Löwen og Alexander Petersson tvö.

Vardar er því komið með fjögurra stiga forystu á toppi riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×