Tónlist

Ljón og hákarlar verða á sviðinu

Katy Perry lofar mikilfenglegri sýningu annað kvöld.
Katy Perry lofar mikilfenglegri sýningu annað kvöld. Vísir/Getty
Söngkonan Katy Perry ætlar að tjalda öllu til í hálfleik á Super Bowl-leiknum í bandaríska ruðningnum á morgun. Ljón og hákarlar verða með henni á sviðinu.

Leikurinn fer fram á milli Seattle Seahawks og New England Patriots og eins og áður er mikil eftirvænting eftir tónlistaratriðinu í hálfleik. Auk Perry mun Lenny Kravitz stíga á svið.

Hin þrítuga Perry lofar mikilli ljósadýrð og sýningu. „Ég er örugglega eina manneskjan sem hefur sungið í hálfleik með ljón og hákarla mér við hlið,“ sagði hún á blaðamannafundi.

„Þetta verður villt þarna úti. Ég ætla að búa til þrjá eða fjóra mismunandi heima. Inngangan hjá mér og útgangan verða stórfenglegar og búningarnir eru frábærir. Ég þarf að komast í gegnum mörg lög, þannig að þetta verður sambræðingur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×