Lífið

Ljón: Einbeittu þér að því að hugsa jákvætt

Ef þú hugsar bara um það slæma færðu meira af því.
Ef þú hugsar bara um það slæma færðu meira af því.
Elsku ómetanlega Ljónið mitt. Þú ert í fallegu lífi, opnaðu augun bara aðeins betur, sjáðu það góða í kringum þig og þakkaðu fyrir það. Þá margfaldast hið góða því þú ert magnari lífsins. Ef þú hugsar bara um það slæma færðu meira af því. Þetta skrifa ég til þín því plánetan þín er sólin. Já sólin sjálf!

Það er ekki búin að vera nein lognmolla í kringum þig og það skiptir öllu máli að nýta sér tengslanetið og efla sjálfan sig. Í því felast tækifæri sem tengjast vinnu. Það er verið að senda þér hjálp og hún mun birtast í því að fólk mun koma inn í líf þitt og sýna þér hvað þú getur gert og gefa þér það sem þú þarft. Þetta eru sendiboðar alheimsins.

Orðið sendiboði þýðir engill. Og í þínu tilfelli er það sólarengill, elsku Ljónið mitt.

Í mestu erfiðleikum okkar fáum við vilja til að sjá ljósið. Líttu upp í ljós með Palla er lagið þitt fyrir næsta mánuðinn. Ný tækifæri eru í kortinu þínu sem munu efla afkomu þína og vinsældir.

Mottó: Ég er mátturinn og dýrðin.

Frægir í Ljóninu: Cara Delevingne fyrirsæta, Ágústa Eva Erlendsdóttir, leik- og söngkona, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Birgitta Haukdal söngkona, Barack Obama Bandaríkjaforseti, Ásdís Rán fyrisæta, Geir Ólafsson söngvari, Þórunn Antonía alheimsstjarna, Jón Óttar Ragnarsson, athafna- og fjölmiðlamaður, Jennifer Lopez söngkona, Diddú, Sirrý Arnardóttir fjölmiðlakona, Arnór Dan, söngvari Agent Fresco. 


Tengdar fréttir

Vogin: Allt á sér ástæðu

Elsku kjarkmikla Vog. Það er ekki hægt að segja að allt hafi farið nákvæmlega eins og þú ætlaðir þér.

Sporðdreki: Ekkert getur stoppað þig

Elsku Sporðdreki. Það má líkja þér við fuglinn Fönix. Það er alveg sama hvaða erfiðleikum þú lendir í, þú finnur þér alltaf leið út úr þeim.

Hrútur: Láttu heyrast í þér

Elsku aflmikli Hrúturinn minn. Lífið er í raun auðvelt en það erum við sjálf sem flækjum það.

Krabbinn: Hafðu trú á sjálfum þér

Elsku hressi Krabbinn minn. Það er svo mikill kraftur í kortinu þínu að þú verður að nýta þér hann. Það er eins og þú sért að ganga stigann að takmarki þínu og sjáir skýrt hvað þú vilt.

Steingeit: Ekki stjórnast af áliti annarra

Elsku karaktermikla Steingeit. Það þarf að vera myrkur til þess að stjörnurnar sjáist og þú ert búin að hafa regnbogann sem þitt tilfinningalitróf. Það er svo margt sjaldgæft í lífinu, til dæmis ástin.

Nautið: Segðu já við hinu óvænta

Elsku hjartans Nautið mitt. Ekki deyja áður en þú lifir. Þetta ættu að vera einkunnarorðin þín því þú gætir allt eins farið hálfdautt í gegnum lífið ef þú sprengir ekki þægindarammann utan af þér.

Meyjan: Taktu áhættu

Elsku góðhjartaða Meyja. Haustið er þinn tími. Þú skalt nýta þér það að þú ert farin að sjá hvernig þú kemur þér út úr þeim erfiðleikum sem þú hefur áhyggjur af. Þú ert að taka áhættu sem reddast á síðustu stundu.

Vatnsberi: Hafðu gaman af því sem þú gerir

Elsku fallegi Vatnsberi. Mundu að þeir sem haga sér of vel skrifa yfirleitt ekki mannkynssöguna! Og árangur þinn felst ekki í því að hafa allt fullkomið heldur því að hafa gaman af því sem þú gerir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×