Enski boltinn

Liverpool samþykkir tilboð Sunderland í Borini

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hefur Borini leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool?
Hefur Borini leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool? Vísir/Getty
Samkvæmt heimildum Liverpool Echo, staðarblaðsins í Liverpool samþykkti félagið í kvöld tilboð frá Sunderland í ítalska framherjann Fabio Borini. Talið er að upphæðin sé fjórtán milljónir punda háð árangurstengdum greiðslum.

Borini sem gekk til liðs við Liverpool sumarið 2012 hefur aldrei náð að festa sig í sessi hjá félaginu. Glímdi hann við gríðarlega mikið af meiðslum á fyrsta tímabili sínu hjá félaginu og var hann síðan lánaður til Sunderland á síðasta tímabili.

Hjá Sunderland sló Borini í gegn en hann skoraði meðal annars glæsileg mörk gegn erkifjendunum í Newcastle og skoraði eina mark liðsins í úrslitum deildarbikarsins í febrúar.

Borini er sagður vera opinn fyrir því að ganga til liðs við Sunderland til þess að fá að spila en ólíklegt þykir að hann fái margar mínútur hjá Liverpool í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×