Enski boltinn

Liverpool rúllaði yfir Barcelona á Wembley

Anton Ingi Leifsson skrifar
Liverpool fagnar marki í dag.
Liverpool fagnar marki í dag. vísir/getty
Liverpool gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir Barcelona í æfingarleik, en leikið var á Wembley í dag.

Sadio Mané kom Liverpool yfir strax á fimmtándu mínútu eftir geggjaða stoðsendingu frá Adam Lallana, en staðan var 1-0 í hálflelik fyrir Bítlaborgarliðinu.

Javier Mascherano tvöfaldaði forystuna fyrir sína gömlu félaga í Liverpool þegar hann skoraði sjálfsmark í byrjun síðari hálfleiks, en einungis mínútu síðar kom Divock Origi Liverpool í 3-0.

Það var svo Marko Grujic sem rak síðasta naglann í líkkistu Börsunga, en hann gekk í raðir Liverpool frá Crvena Zvezda og lokatölur 4-0 sigur Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×