Enski boltinn

Liverpool og Sevilla kærð

Anton Ingi Leifsson skrifar
Það voru læti í Basel á miðvikudag.
Það voru læti í Basel á miðvikudag. vísir/getty
Liverpool og Sevilla hafa verið kærð af Knattspyrnusambandi Evrópu, UEFA, vegna hegðunar stuðningsmanna liðanna á úrslitaleik Evrópudeildar UEFA á miðvikudag.

Liverpool var kært vegnar óláta stuðningsmanna liðsins sem kveiktu einnig á flugeldum. Sevilla var einnig kært vegna óláta stuðningsmanna sinna. Málið verður tekið fyrir í sérstakri aganefnd UEFA þann 21. júlí, en liðin geta mótmælt kærunni.

Lögreglan var kölluð á vettvang en um tuttugu til þrjátíu stuðningsmenn beggja liða lentu í ryskingum fyrir leikinn og réðu öryggisverðir ekki við ástandið.

Sevilla seldi einungis sjö þúsund af níu þúsund miðum sínum en stuðningsmenn Liverpool voru í miklum meirihluta á St. Jakob-Park í Basel.

Lögreglan greindi frá því að enginn af þeim sem slógust hefðu verið handteknir enda engin kvörtun borist frá Basel.


Tengdar fréttir

Hetja Sevilla stráir salti í sár Liverpool-manna

Jorge Andújar Moreno, betur þekktur sem Coke, stal fyrirsögnunum á bæði Englandi og á Spáni á morgun en hann skoraði tvö mörk þegar Sevilla vann 3-1 sigur á Liverpool í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×