Enski boltinn

Liverpool neitar sögusögnum um Alisson

Anton Ingi Leifsson skrifar
Alisson í leik með Brasilíu á HM.
Alisson í leik með Brasilíu á HM. VÍSIR/GETTY
Liverpool hefur neitað þeim sögusögnum að hafa boðið í markvörð Roma, Alisson Becker, en fjölmiðlar greindu frá því fyrr í dag.

Fréttastofa Sky á Ítalíu greindi frá því fyrr í dag að Roma væri að íhuga tilboð frá Liverpool en nú hafa heimildarmenn komið að máli við Sky og neitað þessu.

Þeir hafa ekki boðið í markvörðinn brasilíska og hafa ekki sett sig í samband við ítalska félagið, Roma, hvað varðar markvörðinn.

Sjá einnig:Roma íhugar kauptilboð Liverpool í Alisson

Þessi 25 ára gamli markvörður spilaði 49 leiki fyrir Roma á síðustu leiktíð þar sem hann spilaði stórt hlutverk er liðið fór í undanúrslit Meistaradeilarinnar.

Hann spilaði svo alla fimm leiki Brasilíu á HM sem datt út gegn Belgíu í átta liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×