Enski boltinn

Liverpool nældi í efnilegan Brassa

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Allan á æfingu með Liverpool í vikunni.
Allan á æfingu með Liverpool í vikunni. vísir/getty
Liverpool hefur fest kaup á Allan, efnilegum brasilískum leikmanni frá Internacional.

Allan, eða Allan Rodrigues de Souza eins og hann heitir fullu nafni, hefur æft með Liverpool að undanförnu og var í leikmannahópi liðsins þegar það vann 0-2 sigur á HJK í æfingaleik í Helsinki í dag.

Talið er að Liverpool hafi borgað Internacional 500.000 pund fyrir Allan sem leikur sem framliggjandi miðjumaður.

Hjá Liverpool hittir Allan fyrir landa sína Philippe Coutinho, Lucas Leiva og Roberto Firmino.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×