Enski boltinn

Liverpool lánar Markovic til Hull

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Markovic klárar tímabilið með Hull.
Markovic klárar tímabilið með Hull. vísir/getty
Hull City hefur fengið serbneska kantmanninn Lazar Markovic á láni frá Liverpool út tímabilið.

Liverpool keypti Markovic frá Benfica fyrir 20 milljónir punda 2014. Serbinn skoraði þrjú mörk í 34 leikjum fyrir Liverpool tímabilið 2014-15.

Á síðasta tímabili var Markovic lánaður til Fenerbache og fyrri hluta þessa tímabils lék hann með Sporting í Lissabon.

Markovic, sem er 22 ára, hefur leikið 22 landsleiki fyrir Serbíu og skorað þrjú mörk.

Hull er í nítjanda og næstneðsta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig eftir 22 umferðir, tveimur stigum frá öruggu sæti.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×