Enski boltinn

Liverpool hafði betur gegn WBA | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Liverpool vann góðan sigur á WBA, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Sadio Mane skoraði fyrsta mark leiksins á 21. mínútu og það var síðan Philippe Coutinho sem kom Liverpool í 2-0 þegar tíu mínútur voru eftir af fyrri hálfleik.

Staðan var 2-0 í hálfleik en leikmenn WBA komu sterkari til baka í þeim síðari.

Gareth McAuley náði að minnka muninn fyrir WBA á 82. mínútu en lengra komust gestirnir ekki.

Liverpool er því komið á toppinn í deildinni ásamt Arsenal en liðin eru bæði með 20 stig. Arsenal með betra markahlutfall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×