Fótbolti

Liverpool fer til Spánar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Leikmenn Liverpool fagna sigurmarkinu gegn Dortmund í gær.
Leikmenn Liverpool fagna sigurmarkinu gegn Dortmund í gær. Vísir/Getty
Liverpool mætir Villarreal í undanúrslitum Evrópudeildar UEFA en dregið var í dag. 

Liverpool hefur slegið Augsburg, Manchester United og Dortmund úr leik í útsláttarkeppninni en slapp við ríkjandi meistara Sevilla í undanúrslitunum.

Sevilla leikur gegn úkraínska liðinu Shakhtar Donetsk í hinni undanúrslitaviðureigninni en leikirnir fara fram 28. apríl og 5. maí.

Liverpool fær heimaleikinn sinn í síðari viðureigninni en úrslitaleikurinn fer svo fram í Basel þann 18. maí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×