Enski boltinn

Liverpool fær Leeds í heimsókn í deildabikarnum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Daniel Sturridge er búinn að skora fjögur mörk fyrir Liverpool í deildabikarnum.
Daniel Sturridge er búinn að skora fjögur mörk fyrir Liverpool í deildabikarnum. vísir/getty
Dregið var til átta liða úrslita enska deildabikarsins í kvöld eftir að þremur síðustu leikjum 16 liða úrslitanna lauk.

Liverpool, sem vann Tottenham, 2-1, í gær mætir Leeds á heimavelli og Manchester United fær West Ham í heimsókn.

United lagði City í borgarslag í kvöld og West Ham gerði sér lítið fyrir og vann Chelsea á heimavelli, 2-1.

Arsenal og Southampton mætast á Emirates-vellinum en Dýrlingarnir unnu Sunderland á heimavelli í kvöld þar sem dýrasti leikmaður liðsins í sögunni skoraði sigurmarkið.

Hull mætir svo eina liðinu sem eftir er úr B-deildinni en það er Newcastle.

Drátturinn:

Arsenal - Southampton

Hull - Newcastle

Manchester United - West Ham

Liverpool - Leeds


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×