Fótbolti

Liverpool einum sigri frá Meistaradeildinni | Sjáðu mörkin í 3-0 sigri á Villarreal

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Liverpool-menn fagna marki.
Liverpool-menn fagna marki. vísir/getty
Liverpool tryggði sér sæti í úrslitaleik Evrópudeildarinnar eftir 3-0 sigur í seinni undanúrslitaleiknum á móti spænska liðinu Villarreal á Anfield í kvöld.

Villarreal vann fyrri leikinn 1-0 en Liverpool skoraði strax í upphafi leiks og bætti síðan við tveimur mörkum í seinni hálfleik. Liverpool skoraði þriðja markið eftir að Villarreal hafði misst fyrirliða sinn af velli með tvö gul spjöld.

Liverpool mætir öðru spænsku liði í úrslitaleiknum á St. Jakob-Park í Basel 18. maí næstkomandi því Sevilla er komið alla leið þriðja árið í röð.

Liverpool er nú aðeins einum sigri frá Meistaradeildinni því sigurvegarinn í Evrópudeildinni í ár tryggir sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Sigur Liverpool-liðsins var sannfærandi. Liðið gaf tóninn strax í byrjun og gat bætt við fleiri mörkum. Spænska liðið ógnaði með skyndisóknum í fyrri hálfleik en eftir hlé var aldrei spurning um hvernig færi í kvöld.

Daniel Sturridge og Adam Lallana skoruðu seinni tvö mörk Liverpool en fyrsta markið var sjálfsmark hjá Bruno, leikmanni Villarreal. Daniel Sturridge kom við sögu í öllum þrmeur mörkunum.

Liverpool byrjaði leikinn af miklum krafti og fyrsta markið kom eftir aðeins sjö mínútur en það var sjálfsmark eftir undirbúning Roberto Firmino. Daniel Sturridge var nálægt því að skora en boltinn fór af Villarreal-manninum og í markið.

Daniel Sturridge bætti við öðru marki Liverpool á 63. mínútu þegar boltinn datt fyrir hann í teignum eftir flottan undirbúning frá Roberto Firmino. Sturridge nýtti sér það og kom Liverpool í frábæra stöðu.

Víctor Ruiz, fyrirliði Villarreal, fékk sitt annað gula spjald á 71. mínútu og því spilaði spænska liðið manni færri síðustu tuttugu mínútur leiksins.

Eftirleikurinn var því auðveldur fyrir Liverpool og úrslitin voru endanlega ráðin þegar Adam Lallana skoraði þriðja markið tíu mínútum síðar eftir að hann framlengdi skot Daniel Sturridge yfir marklínuna.

Liverpool kemst í 1-0 á sjöundu mínútu Sturridge kemur Liverpool tveimur mörkum yfir Adam Lallana gulltryggir sigur Liverpool með þriðja markinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×