Enski boltinn

Liverpool búið að kaupa Mané

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sadio Mané skoraði 15 mörk á síðasta tímabili.
Sadio Mané skoraði 15 mörk á síðasta tímabili. vísir/epa
Enska úrvalsdeildarliðið Liverpool hefur fest kaup á Sadio Mané frá Southampton.

Mané, sem er 24 ára gamall Senegali, hefur leikið með Southampton undanfarin tvö ár og skorað 25 mörk í 75 leikjum fyrir félagið. Þar áður lék hann með Metz í Frakklandi og austurríska liðinu Red Bull Salzburg.

„Þetta er stór dagur og ég er mjög ánægður með að vera búinn að semja við eitt af stærstu félögum Evrópu,“ sagði Mané við undirskriftina.

„Þetta félag hefur unnið fullt af titlum og saga þess er merkileg.“

Mané er fjórði leikmaðurinn sem kemur til Liverpool í sumar en auk hans eru Þjóðverjarnir Loris Karius og Joël Matip og serbneski miðjumaðurinn Marko Grujic komnir á Anfield.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×