Golf

Lítt þekktur Svíi í efsta sætinu í Malasíu eftir fyrsta hring

Ryan Moore hóf titilvörn sína í Malasíu með góðum hring.
Ryan Moore hóf titilvörn sína í Malasíu með góðum hring. Getty
Svíinn Rikard Karlberg leiðir eftir fyrsta hring á CIMB Classic sem fram fer á Kuala Lumupur vellinum í Malasíu en hann er á sjö höggum undir pari.

Karlberg er lítt þekktur kylfingur sem hefur spilað á asísku PGA-mótaröðinni undanfarin ár en hann lék frábært golf á fyrsta hring og fékk ekki einn einasta skolla. Í öðru sæti koma Angelo Que, Brian Stuard og Billy Hurley á fimm höggum undir pari.

Sigurvegari síðasta árs, Ryan Moore, hóf titilvörn sína vel en hann er á fjórum höggum undir pari, einu höggi betri heldur en Sergio Garcia sem er meðal þátttakenda um helgina. Hann notaðist við nýtt púttgrip á fyrsta hring sem hann lék á þremur höggum undir pari.

Fleiri þekkt nöfn eru með í mótinu en þar má helst nefna bandaríska ungstirnið Patrick Reed sem lék fyrsta hring á tveimur höggum undir pari, Lee Westwood kom inn á sléttu pari og Jason Dufner átti erfiðan dag en hann lék á tveimur yfir pari og er mjög neðarlega á skortöflunni.

Golfstöðin mun sýna frá tveimur stórum mótum um helgina en CIMB Classic og BMW Masters, sem er eitt veglegasta mót ársins á Evrópumótaröðinni, verða bæði á dagskrá stöðvarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×