Glamour

Litrík og töffaraleg lína Louis Vuitton

Ritstjórn skrifar
Fötin pössuðu einstaklega vel inn í umhverfið á Niteròi Contemporary safninu.
Fötin pössuðu einstaklega vel inn í umhverfið á Niteròi Contemporary safninu. Myndir/Getty
Louis Vuitton sýndi Resort 2017 línuna sína í Niteròi Contemporary listasafninu í Ríó, Brasilíu. Safnið er eitt af helstu kennileitum borgarinnar en það er hannað af Oscar Niemeyer. Fatalínan passaði vel inn í þetta óvenjulega safn en þau voru einstaklega litrík, töffaraleg og öðruvísi þegar að það kom að sniðuðun. 

Strigaskór, litríkir kjólar, stórar töskur og kvenleg snið voru áberandi á sýningunni en hún hefur fengið einstaklega góða dóma hjá fjölmiðjum erlendis. 

Mikil spenna hefur verið fyrir sýningunni frá því að það var tilkynnt í febrúar á þessu ári að hún yrði haldin á þessum stað. Nicolas Ghesquiére, yfirhönnuður Louis Vuitton, hefur farið með merkið nýjar og spennandi leiðir og voru fjölmargir úr tískuelítunni sem flugu alla leið til Brasilíu til þess eins að fá að sjá sýninguna með eigin augum. 

 

#LVCruise 2017 by @nicolasghesquiere

A photo posted by Louis Vuitton Official (@louisvuitton) on

A boombox case on the runway at @louisvuitton cruise 2017 #lvcruise

A photo posted by Tommy Ton (@tommyton) on

@louisvuitton #lvcruise #riodejaneiro

A video posted by Miroslava Duma (@miraduma) on






×